Elvar Bjarnason (f. 2001) er hönnuður sem vinnur með hversdagslega hluti og kannar samband fólks við þá. Viðfangsefnin spanna allt frá trúarbrögðum og bætiefnum til skeiða og þess að kúka úti. Hugmyndirnar taka gjarnan á sig mynd á verkstæðinu. Innblásturinn kemur úr náttúrunni, daglegum athöfnum og samtölum við fólk. Ljósmyndun og kvikmyndagerð verða oft hluti af rannsókninni. Í verkefnum eltir Elvar efnisþekkingu og sögu hluta til að búa til samtal um viðeigandi viðfangsefni.
- Kaffi og skeiðar og koma oft fyrir hjá mér. Það sem tengir þetta saman er áhugi á því sem gerist í kringum hlutina. Kaffibolli gefur tilefni til að setjast niður með einhverjum og eiga gott samtal. Ég vinn oft þannig. Hugmynd kviknar í samtali, ég prófa hana í höndunum og þróa hana áfram.
- Ég vil gera fallega hluti sem hafa sögu að segja. Stundum byrja ég á hlut og rek sögu hans. Stundum bý ég fyrst til sögu og velti fyrir mér hvaða hlutir gætu átt heima í henni. Ég vel efni og miðil eftir því hvað mig langar að leggja áherslu á hverju sinni. Það getur verið jafn eðlilegt að niðurstaðan verði bók eða kvikmynd og smíðaður hlutur.
instagram: elvar_bjarna
mail: elvar.bjarna@gmail.com