Heim / Home


Athugun / Observation


Hlutur: Skeið

Staðsetning: Nettó

Verð: 79 krónur stk

Efni: Tré úrgangur 


Þessar einnota skeiðar eru unnar úr viðar úrgangi og lífrænu lími. Þær brotna niður í náttúrunni en eru samt nógu vel gerðar til að þola að vera notaðar oftar en einu sinni. þetta eru einu skeiðarnar sem að ég fann í búðinni og því eini kosturinn fyrir þá sem bráðvantar skeið. 











Hlutur: Skeið

Staðsetning: Ikea

Verð: 111,25 krónur stk

Efni: Ryðfrítt stál


Þessar skeiðar eru örugglega með þeim ódýrustu sem hægt er að finna. þessar fjölnota skeiðar eru gerðar úr ryðfríu stáli og ódýrar bæði í efni og gæðum. Einföld ódýr lausn fyrir þá sem eru nýfluttir að heiman og vantar skeiðar eða fyrir þá sem að er alveg sama um mataráhöldin sín.










Hlutur: Skeið

Staðsetning: Erna 

Verð: 45.500 krónur stk

Efni: Silfur


Mjög dýrar skeiðar sem að fáir eiga efni á. silfur hefur þann eiginleika að vera sótthreinsandi og því mjög gott efni í mataráhöld. skeiðin er fallega skreytt og mjög vönduð. 
Athugun

skeiðarnar virðast vera í mjög mismunandi verðflokki, þar er greinilegt gat þar sem hægt væri að hanna inn í. Plastefni og pappi virðast hafa horfið af markaði, efniviðurinn sem að er mest af eru málmar og viður. Það er lítið úrval að velja úr, skeiðarnar eru úr svipuðum efnum og í svipuðu formi og lítið sem að stingur út. Skeiðarnar eru að mestu óskreyttar, það er aðeins silfur skeiðarnar sem að voru það, eina sem breyttist er efniviðurinn. Í Nettó voru skeiðarnar staðsettar með öðrum einnota hlutum en í Ikea og Ernu voru þær með öðrum mataráhöldum og eldhúsdóti. 



Skeið sem að ég tálgaði.
Tilraun til að kynnast efni og þjálfa verkvit.